Clicky

  HelixErfdavisir

Forsíða Erfðavísis EfnisyfirlitNafnaskráAtriðaorðaskrá Um erfðavísinn og vefinn
 
Erfðavísir er fræðsluefni sem kynnir erfðafræði og erfðafræðirannsóknir á einfaldan og skýran hátt. Efnið er ætlað öllum aldurshópum og til kennslu á öllum skólastigum.

Þremur meginköflum sem sjá má hér til hægri er skipt í 41 kafla. Hver kafli hefst á yfirliti yfir afmarkað viðfangsefni erfðafræðinnar og inniheldur myndskeið með nánari kynningu á þeim vísindamönnum og tilraunum sem áttu stærstan þátt í að móta skilning okkar á því.

Í hverjum kafla eru einnig verkefni sem lesendur geta spreytt sig á til að prófa þekkingu sína og spurningar sem ætlað er að leiða lesendur til umhugsunar um ýmis atriði sem tengjast efni kaflans.
    Frumkvöðlar erfðafræðinnar og niðurstöður þeirra sem skýrðu hvernig eiginleikar erfast á milli kynslóða.
   
Kynning á erfðaefninu DNAi og hvernig það geymir og flytur upplýsingar.
   
Hvernig er erfðaupplýsingum komið fyrir í hverri frumu og hvernig er virkni genanna stjórnað í tíma og rúmi?
   

Smellið á einhvern hnappana hér að ofan til að byrja. Ef þú sérð ekki hnappana hér að ofan, þarftu að ná í Flash spilara frá Macromedia®.


Dolan DNA Learning Center
Erfðavísir - inngangur að erfðafræði, er afrakstur samstarfs Íslenskrar erfðagreiningar og Dolan DNA Learning Center við Cold Spring Harbor í Bandaríkjunum um íslenska þýðingu á fræðsluefni um erfðafræði.
Íslensk erfðagreining